Guðmundur Brynjólfsson, rithöfundur á Eyrarbakka, sendir frá nú sér sakamálasöguna Þögla barnið sem er sjálfstætt framhald Eitraða barnsins sem út kom í fyrra og hlaut
afbragðs móttökur lesenda og gagnrýnenda.
Laust fyrir aldamótin 1900 er maður drepinn á Vatnsleysuströnd. Líkið er hræðilega útleikið. En þótt Strandaringar láti sem þeir viti allt um morð þetta er enginn handtekinn. Engar sannanir liggja fyrir en heimamönnum stendur á sama.
Yfirvöld úti í kóngsins Kaupmannahöfn heimta rannsókn.
Eyjólfur Jónsson, sýslumaður Árnesinga, og rannsóknardómari í þessu einstaka máli fær inni í Landakoti á Vatnsleysuströnd og hefur eiginkonu sína, valkyrjuna Önnu Bjarnadóttur, með sér til halds og trausts. Smám saman fara þeim hjónum að birtast þegjandalegir draugar þessarar harðbalalegu sveitar þar sem menn eru drepnir, ekki bara einu sinni heldur jafnvel oft.
Saga Eyjólfs sýslumanns fléttast saman við atburði í Lundúnum þar sem sýsluskrifarinn Kár Ketilsson þvælist um og lætur ekkert gott af sér leiða. Yfir um og allt um kring er óslökkvandi brennivínsþorsti, breyskleiki fátækra manna og ást á réttlæti smælingjanna.