Þórey Hekla Ægisdóttir, frá Búðardal, sigraði í söngkeppni Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands en keppnin fór fram í Iðu í gærkvöld.
Þórey Hekla söng lagið It´s a Man´s World. Í öðru sæti varð Hvergerðingurinn Gígja Marín Þorsteinsdóttir með lagið Turning Tables og í þriðja sæti varð Kolbrún Katla Jónsdóttir frá Lyngholti í Flóahreppi með lagið I Have Nothing.
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir sviðsframkomu og flott atriði, en það var Hermann Snorri Hoffritz sem hreppti þau með flutningi á frumsömdu lagi.
Alls tóku tíu atriði þátt í keppninni sem var hin glæsilegasta en söngkeppnin er langstærsti viðburður á vegum nemendafélagsins á hverri haustönn. Þema kvöldsins var Taktu flugið og var íþróttahúsið skreytt hátt og lágt í samræmi við það.