Þórkatla sigurvegari Blítt og létt

(F.v.) Sigurður Emil Pálsson og Vésteinn Loftsson sem lentu í 3. sæti, Þórkatla Loftsdóttir, sigurvegari keppnarinnar, Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir sem hafnaði í 2. sæti og Hjördís Katla Jónasdóttir sem fékk verðlaun fyrir skemmtilegasta atriðið. Ljósmynd/Aðsend

Þórkatla Loftsdóttir sigraði í söngkeppni Nemendafélagsins Mímis, Blítt og létt, sem var haldin í íþróttahúsinu á Laugarvatni fimmtudaginn 31. október síðastliðinn.

Þórkatla söng Rokkstig, sem er frumsamið lagið og þótti flutningur hennar bæði vera fumlaus og öruggur. Í öðru sæti, þriðja árið í röð, var Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir en hún gerði laginu Andvaka góð skil.

Í þriðja sæti urðu svo Vésteinn Loftsson og Sigurður Emil Pálsson sem sungu saman lagið Ekkert breytir því með Sálinni hans Jóns míns. Þess má geta að Vésteinn og Þórkatla eru systkini.

Skemmtilegasta atriði kvöldsins var flutningur Hjördísar Kötlu Jónasdóttur á laginu Afi eftir Björk Guðmundsdóttur. Með henni í bakröddum voru þeir Daníel Aron Bjarndal Ívarsson og Ragnar Dagur Hjaltason.

Erfitt val fyrir dómarana
Söngkeppnin, sem var haldin í 35. skipti, þótti hin glæsilegasta og voru ellefu atriði skráð til leiks í keppninni. Dómarar kvöldsins voru Fríða Hansen, Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og þau höfðu á orði við verðlaunaafhendinguna að afar mjótt hefði verið á mununum og gríðarlega erfitt fyrir dómarana að gera upp hug sinn. Keppnin í heild sinni hafði á sér glæsilegan brag og greinilega miklir sönghæfileikar sem leynast í Menntaskólanum að Laugarvatni.

Dómnefnd keppninnar, Fríða Hansen, Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Kynnar kvöldsins voru þau Katrín Ölversdóttir og Ragnar Leó Sigurgeirsson sem útskrifuðust bæði úr ML vorið 2024. Þau héldu uppi stuði og stemningu með léttri sviðsframkomu og góðu glensi. Einnig átti Þrándur Ingvarsson, útskriftarnemi vorsins 2024, stutta innkomu með frumsamið atriði sem hann skemmti áhorfendum í samstarfi við hljómsveit hússins. Húsbandið var eins og undanfarin ár snillingarnir í Stone Stones.

Kynnar kvöldsins, Katrín Ölversdóttir og Ragnar Leó Sigurgeirsson. Ljósmynd/Aðsend

Sama dag og söngkeppnin fór fram bauð ML flestum 10. bekkingum á Suðurlandi í heimsókn í skólann þar sem þeim gafst tækifæri til að skoða skólann og ljúka svo deginum á Blítt og létt. Kynningardagskráin tókst einkar vel og vill skólinn þakka öllum þeim góðu gestum sem nutu dagsins á Laugarvatni.

Fyrri greinHaukar kreistu fram sigur í lokin
Næsta greinSáu ekki til sólar í Smáranum