Fyrirlestraröðinni Fullveldið og hlíðin fríða að Kvoslæk í Fljótshlíð lýkur laugardaginn 8. september klukkan 15.00 með fyrirlestri Gunnars Þórs Bjarnasonar sagnfræðings um Tómas Sæmundsson, sjálfstæðisbaráttuna og fullveldið 1918.
Fjölnismaðurinn sr. Tómas Sæmundsson (1807-1841) fór í menningarferð um Evrópu brennandi í andanum „að koma í föðurlandi mínu nokkru því til vegar sem ég hafði séð í hinum siðaðri löndum og ég þóttist sannfærður um að líka gæti þrifist á Íslandi,“ sagði hann í Ferðabók sinni.
Tómas var eldheitur ættjarðarvinur og lék stórt hlutverk í þjóðernisvakningunni sem varð meðal íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn á fjórða og fimmta áratug 19. aldar.
Í erindinu fjallar Gunnar Þór um stjórnmálahugmyndir Tómasar, upphaf sjálfstæðisbaráttunnar og þróun hennar þar til Ísland varð fullvalda ríki árið 1918. Sjálfstæðishugmyndir Íslendinga breyttust í tímans rás og spurt verður hvenær fullveldi komst á dagskrá í íslenskri stjórnmálaumræðu. Hvernig hefði Tómasi Sæmundssyni verið innanbrjósts á Stjórnarráðstúninu við Lækjargötu í Reykjavík á hádegi sunnudaginn 1. desember 1918 þegar ríkisfáni Íslands var dreginn að húni?
Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar um sjálfstæðisbaráttuna í upphafi 20. aldar og íslenskt samfélag og stöðu Íslands í fyrri heimsstyrjöldinni 1914-1918.
Fullveldissjóður og Uppbyggingarsjóður SASS styrkja fyrirlestraröðina.