Tónleikar og helgistund á aftökudegi Jóns Arasonar

Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran syngur einsöng.

Í ár eru 500 ár liðin frá því að herra Jón Arason var vígður biskup en hann hlaut vígslu árið 1524. Á aftökudegi Jóns, þann 7. nóvember, verða tónleikar og helgistund í Skálholti klukkan 20:00.

Kristján Björnsson, biskup í Skálholti, flytur hugvekju og les ljóðmæli eftir Jón Arason. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran syngur einsöng, Skálholtskórinn syngur falleg kórverk og verður meðal annars flutt Ave María eftir Sigurð Bragason fyrir kór og einsöng og Locus iste eftir Anton Bruckner. Organleikur og kórstjórn er í höndum Jóns Bjarnasonar dómorganista.

Eftir stundina er tendrað ljós við minnisvarða Jóns og hægt verður að fá heitt súkkulaði á veitingastaðnum Hvönn. Áralöng hefð er fyrir viðburðum í Skálholtsdómkirkju í minningu um Jón Arason og syni hans Björn og Ara.

Ókeypis aðgangur og allir eru velkomnir. Bent er á að hægt verður að fá sér dýrindis súpu á Veitingastaðnum Hvönn í Skálholti fyrir viðburðinn.

Fyrri greinÖruggur sigur Hamars í Suðurlandsslag
Næsta greinUm níu þúsund manns mættu á opnunarhelgina