Tveir viðburðir í Skógasafni í kvöld

TF-FAR í Samgöngusafninu í Skógum.

Tveir viðburðir verða haldnir að kvöldi sumardagsins fyrsta í Skógasafni undir Eyjafjöllum.

Klukkan 19:30 munu þeir Jóhann Einarsson og Reynir Ragnarsson afhenda formlega flugvél sína, TF-FAR, Samgöngusafninu í Skógum til eignar og varðveislu. Allir vinir og velunnarar þeirra Jóhanns og Reynis eru boðnir velkomnir til þessarar athafnar.

Klukkan 20:30 verður svo hist í Skógakirkju til minningar um Þórð Tómasson. Að hætti Þórðar verður stutt helgistund í Skógakirkju með Árna Þór, nýsettum presti svæðisins. Síðan verður farið í gamla Litla-Hvamms skólann á safnasvæðinu og sungin sumar- og ættjarðarlög, eins og raddböndin þola, við undirleik Brians Haroldsson organista í Vík. Eftir sönginn verður boðið upp á kaffi í Samgöngusafninu.

Fyrri greinSelfyssingum spáð 4. sæti
Næsta greinKarlakór Selfoss hefur upp raust sína