Tvö sunnlensk lög í Jólalagakeppni Rásar 2

Fríða Hansen og Súper Últímet Brós eru í miklu jólastuði. Ljósmynd/Aðsend

Sunnlendingar eiga sína fulltrúa í jólalagakeppni Rásar 2 en af þeim fimm lögum sem eru komin í úrslit eru tvö þeirra afsprengi Sunnlendinga.

Það eru lögin Jólageit í flutningi Súper Últímet Brós og Fríðu Hansen og hinsvegar lagið Stúfur í flutningi Kjalars.

Samdi lagið í sumarsnjókomu
Lagið Stúfur er samið af Leifi Gunnarssyni frá Selfossi en þess má geta að Rangæingurinn Óskar Þormarsson spilar á trommur í laginu. Sólrún Svava Kjartansdóttir sem leikur á fiðlu og víólu í laginu á svo ættir að rekja til Selfoss.

„Það er rosalega skemmtilegt að fá lagið sitt í þessa keppni. Ég er svona wannabe poppari, hef meira verið að vinna með jazztónlist svo þetta er smá hliðarspor,“ segir Leifur í samtali við sunnlenska.is.

„Ég skrifaði þetta lag í sumar, án djóks, þegar ég var úti að hlaupa og það kom skyndilega snjókoma og ég komst samstundis í jólafíling!“

„Lagið sækir innblástur í hljóðheima listamannsins Bobby Caldwell sem gerði það gott á áttunda áratug síðustu aldar og fjallar um uppáhalds jólasveininn minn, hann Stúf, og hvernig hann hefur siðast til með tímanum,“ segir Leifur.

Leifur Gunnarsson. Ljósmynd/Aðsend

Ekki lag um IKEA-geitina
Selfossbræðurnir Andri Snær og Arnór Sindri Sölvasynir eiga svo heiðurinn af laginu Jólageit en lagið gefa þeir út í samvinnu við söngkonuna Fríðu Hansen frá Leirubakka í Landsveit.

„Við bræðurnir erum stoltir Selfyssingar í húð og hár, þótt við búum á Suðurnesjunum núna,“ segir Arnór Sindri í samtali við sunnlenska.is.

„Við bræður erum í skýjunum yfir að vera komnir í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2. Sigurvegararnir fá meðal annars tækifæri til að flytja lagið í jólaþætti Gísla Marteins, sem væri algjör draumur fyrir okkur. Við erum miklir aðdáendur Gísla Marteins, höfum tvisvar verið í salnum á þessu ári og eigum meira að segja bolla þáttarins! Að fá að flytja lagið í þættinum hans væri sannkölluð jólaósk.“

Jólageit er skemmtilegt og grípandi jólalag sem fangar hátíðarandann á einstakan hátt. Lagið snýst þó ekki um IKEA-geitina, því það kviknar ekki í þessari jólageit heldur kveikir hún í þér! En hver er jólageitin? Hún er sú sem gerir allt upp á tíu í jólaundirbúningnum og massar hvert einasta verkefni – Messi jólanna má segja,“ segir Arnór ennfremur.

Til mikils að vinna
Sem fyrr segir komust fimm lög í úrslit Jólalagakeppni Rásar 2. Kosning milli laganna er þegar hafin en hægt er að kjósa í appinu RÚV Stjörnur. Einnig er hægt að kjósa í gegnum vefinn með því að smella hér. Sigurvegari keppninnar verður tilkynntur í útvarpsþættinum Popplandi fimmtudaginn 12. desember. Sigurvegarinn fær glæsilega vinninga að verðmæti hátt í 800.000 kr. – auk þess að spila í beinni hjá Gísla Marteini þann 13. desember.

Fyrri greinSkellur gegn botnliðinu
Næsta greinFlestir strikuðu yfir Höllu Hrund eða Karl Gauta