Hin eina sanna Unnur Birna Björnsdóttir mætir með tríó laugardaginn 20. júlí næstkomandi á Suðurlandsdjazz í Tryggvaskála á Selfossi.
Tónleikarnir á þessum margrómaða veitingastað hefjast kl. 15 og ef veðurspáin rætist má reikna með frábærri stemningu við Skálann.
Með Unni leika Gunnar Hilmarsson á gítar og Sigurgeir Skafti á bassa.
Mælst er til að fólk mæti snemma en frítt er á viðburðinn í boði CCEP, Tryggvaskála, Sub ehf og SASS.