Laugardaginn 8. júlí næstkomandi verður það engin önnur en Unnur Birna sem kemur fram á Suðurlandsdjazzi við Tryggvaskála á Selfossi, ásamt þeim Vigni Þór Stefánssyni pianóleikara og Sigurgeiri Skafta bassaleikara.
Eins og alltaf hefjast tónleikarnir klukkan 15:00. Leikinn verður einstaklega ljúfur djazz í alúðlegu umhverfi.
Tónleikarnir eru í boði SASS, Tryggvaskála, Viking Léttöl, FíH og Sub ehf.