Það var mögnuð stund þegar Karlakór Selfoss hélt seinni jólatónleika sína fyrir rúmlega troðfullri Selfosskirkju í gærkvöldi en á fjórða hundrað manns mættu á tónleikana.
Aðgangur var ókeypis en tekið við frjálsum framlögum sem runnu í Sjóðinn góða. Kórinn hélt tónleika í Skálholti í síðustu viku undir sömu formerkjum og á tónleikunum tveimur söfnuðust 685.859 krónur sem kórinn afhenti sjóðnum.
Tónleikagestir í Selfosskirkju gerðu góðan róm að söng kórsins, enda var efnisskráin fjölbreytt, bæði létt og hátíðleg og í lokin var einstök stund þar sem kórinn og tónleikagestir sungu saman Heims um ból.
Sjóðurinn góði er samstarfverkefni ýmissa mannúðar- og líknarfélaga, kirkjusókna og félagsþjónustu í Árnessýslu. Hlutverk sjóðsins er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin og einnig á vormánuðum fyrir fermingar. Hægt er að kynna sér sjóðinn á heimasíðu hans.