Fyrsta sýning í Gallerí undir stiganum, sýningarrými bókasafnsins í Þorlákshöfn, opnar fimmtudaginn 9. janúar klukkan 18.
Þá sýnir Þorlákshafnarbúinn Bjarni Joensen myndir sem hann hefur málað með olíulitum á striga. Bjarni, sem hefur verið mjög afkastamikill málari í mörg ár, tók sér stutta pásu en er nú byrjaður að nýju.
Málverkin á sýningunni koma til með að tengast vetrinum, vetrarfegurð og ljósaskiptunum í skammdeginu. Allir eru velkomnir á opnun sýningarinnar, en boðið verður upp á kaffi og konfekt.
Um sölusýningu er að ræða og stendur sýningin yfir til mánaðarloka.