Síðdegis á Þorláksmessu verður boðið uppá heitt kakó og smákökur í Bókakaffinu á Selfossi en þá er hápunktur jólavertíðarinnar eins og alþjóð veit.
Að sögn Elínar Gunnlaugsdóttur í Bókakaffinu hefur jólaverslunin gengið vel til þessa en það hefur jafnan verið keppikefli Bókakaffisins að hafa gott úrval af bókum fremur en einblína á metsölulista.
„Nokkrar bækur eru þó vinsælli en aðrar og eru Ferðalok eftir Arnald Indriðason hvað vinsælust í flokki fagurbókmennta. Glæpasagnadrottingin Yrsa Sigurðardóttir er með bókina Ég læt sem ég sofi og er sú bók vinsælust í flokki glæpasagna. Í barnabókadeildinni er margt spennandi og þar hefur bókin Tjörnin eftir Rán Flygenring slegið í gegn og er hún núna uppseld hjá útgefanda,“ segir Elín og bætir við að bók Sævars Helga Bragasonar og Elíasar Rúnar með þeim geðþekka titli Kúkur, piss og prump, hafi líka verið mjög vinsæl.
„Þá eru bækur Þórarins Eldjárns, Hlutaveikin og Dótarímur, vinsælar í jólapakkann. Í flokki fræðibóka hefur verið vinsælust Búverk og breyttir tímar eftir Bjarna Guðmundsson og er bókin við það að seljast upp hjá útgefanda. Í ljóðabókum má nefna Jarðljós eftir Gerði Kristnýju og Undir eplatrénu Olav H. Hauge í þýðingu Gyrðis Elíassonar,“ bætir Elín við.
Þess má geta að í Bókakaffinu fást svo ekki einungis bækur heldur líka vínylplötur, gömul Íslandskort og púsl. Vinsælasta vínylplata ársins er Bewitched með Laufeyju.