Á lokadegi 27. Landsmóts UMFÍ á Selfossi kíktum við m.a. í sundlaugina og á frjálsíþróttavöllinn áður en mótinu var slitið – í rigningu.
Pönnukökubaksturinn vekur jafnan mikla athygli og laðar að marga áhorfendur en einnig var boðið upp á keppni í skotfimi og dansi á sunnudeginum.
Í myndaalbúminu hér neðst til hægri má sjá myndir frá þessum greinum.
Nánari upplýsingar kaup á ljósmyndum frá mótinu má nálgast með því að senda póst á gk@sunnlenska.is.