Selfyssingurinn Ingólfur Þórarinsson hefur haft í nægu að snúast í tónlistinni í sumar. Auk þess að þeytast um landið og meðal annars haldið uppi brekkusöng á sjónvarpsskjám landsmanna um verslunarmannahelgina, þá á Ingó tvö af vinsælustu lögum sumarsins á Íslandi. Það er ekki oft sem listamenn eiga tvö lög á öllum helstu vinsældarlistum landsins á sama tíma en það hafa Þjóðhátíðarlagið Takk fyrir mig og smellurinn Í kvöld er gigg gert í sumar.
Fullt nafn: Ingólfur Þórarinsson.
Fæðingardagur, ár og staður: 31. maí 1986 í Reykjavík.
Fjölskylduhagir: Einhleypur.
Menntun: Eitt ár í stjórnmálafræði og 34 ár í skóla lífsins.
Atvinna: Listamaður.
Besta bók sem þú hefur lesið: Jordan Peterson og Dalai Lama.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison Break.
Hvaða bíómynd getur þú horft á aftur og aftur: Shutter Island, Good Will Hunting, American Psycho og Big Short.
Te eða kaffi: Mikið af kaffi.
Uppáhalds árstími: Haustið.
Besta líkamsræktin: Golf og bumbubolti með alvöru leikmönnum.
Hvaða rétt ertu bestur að elda: Hakk og spaghettí.
Við hvað ertu hræddur: Sjálfan mig.
Klukkan hvað ferðu á fætur: 9-12.
Hvað gerir þú til að slaka á: Slaka ekki á – nema mögulega þegar ég pútta.
Hvað finnst þér vanmetið: Gummi bróðir.
En ofmetið: Sushi.
Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð: Mambo nr. 5.
Besta lyktin: Kjötbollulykt.
Bað eða sturta: Sturta.
Leiðinlegasta húsverkið: Brjóta saman þvottinn.
Besta ráð sem þér hefur verið gefið: Fjögur ráð frá Óla vini mínum. Og þar helst að gera sitt besta og taka engu persónulega.
Nátthrafn eða morgunhani: Nátthrafn.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Víetnam.
Hvað fer mest í taugarnar á þér: Hægar sögur.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í: Lífið.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: Fótboltamaður.
Fyndnasta manneskja þú veist um: Sveppi krull.
Ef þú fengir að vera einhver annar í einn dag hver þá: Pabbi, því hann er svo heilsteyptur.
Hvaða samfélagsmiðil notar þú mest: Instagram.
Ef þú værir alvaldur í einn dag: Allir yrðu sáttir í eigin skinni.
Eitthvað sem fæstir vita um þig: Ég er introvert.
Mesta afrek í lífinu: Að gefast aldrei upp.
Ef þú mættir ferðast fram eða aftur í tímann, hvert myndir þú þá fara: Myndi vilja hitta mig sirka 12 ára.
Lífsmottó: Gerðu þitt besta og segðu satt.
Hvað ætlar þú að gera um næstu helgi: Spila golf og borða góðan mat.
Sendu okkur tilnefningu um Sunnlending vikunnar á netfrett@sunnlenska.is